Ein af fallegustu gönguleiðunum á höfuðborgarsvæðinu er um Búrfellsgjá við Heiðmörk. Búrfell myndaðist í einu eldgosi fyrir rúmum 8.000 árum. Gjá er reyndar ekki réttnefni, heldur er um að ræða fallega og heillega hrauntröð, rúmlega 3 kílómetra langa og við endann er Búrfellið, sem er fallegur gjallgígur.
Gengið er eftir slóðum en þó er leiðin grýtt á köflum og í hlíðum Búrfells er lausamöl og þar getur verið gott að vera með stafi. Nokkuð er um sprungur í Búrfellsgjá og því þarf að hafa varann á þegar fennir í þær. Á góðum sumardegi er ganga um Búrfellsgjá við allra hæfi og börn hafa gaman af því að koma þangað og ekki spillir að kíkja í hellisskútana á leiðinni. Í leiðarlýsingu Wappsins er sagt frá því hvernig Búrfellsgjá myndaðist, fjallað um Gjárétt og gjálífið sem var þar, Krýsuvíkur-Gvendur kemur við sögu og bent á hellisskútana.  Leiðarlýsingin um Búrfellsgjá í Wapp – Walking app er í boði Garðabæjar.